Nafn mitt er Ásgeir.




If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed



Wednesday, April 01, 2009
Hvunndagssaga

Nú hef ég fjárfest í nýrri úlpu eins og flestir vita. Þessi úlpa er sérstök fyrir þær sakir að hún skín í myrkri. Þetta getur verið afar góður og hentugur kostur þegar fer að dimma á kvöldin og maður þarf að ganga einn heim. Eitt sinn þegar ég gekk heim eftir að hafa verið á hannyrðanámskeiði ákvað ég að setjast niður á götuna og slappa af. Eftir að hafa setið þarna í um hálftíma (það var rigning) kom til mín maður í rauðum búning með grátt skegg (hvað er annars málið orðið skegg? Það er borið fram skjegg, ég sé ekkert joð í þessu orði). Þessi maður stóð þarna við hliðina á mér í nokkrar mínútur og bjó sig undir að ávarpa mig, að ég hélt. Hann ræskir sig og opnar munninn. Ég bíð spenntur eftir þeim skilaboðum sem hann var um það bil að láta út úr sér. Skilaboðin komu aldrei, heldur gubbaði maðurinn yfir mig allann og gekk á brott. Hann hefur örugglega verið róni. Eins gott að ég var í þessari úlpu, því hún tók mest af ælunni. Fékk reyndar smá inn í hægra eyrað.

Posted at 11:59 pm by asgeir
Segðu eitthvað!  

Wednesday, July 16, 2008
Endilega

Ég ætla að blogga hér aukalega að gefnu tilefni:

www.asgeirasgeir.blogspot.com



endilega.

Posted at 02:08 am by asgeir
Segðu eitthvað!  

Tuesday, April 01, 2008
Geit

Jæja lesendur góðir, biðin er á enda. Það er komið að árlega bloggi þessarar síðu. Vegna fjölda áskoranna hef ég ákveðið að ljóstra upp leyndarmáli sem aldrei hefur litið dagsins ljós fyrr en núna. Þessi hlutur hefur legið á bakinu mínu eins og sementspoki í fjölda ára. Ég skammast mín reyndar dálítið fyrir að segja frá þessu, en það verður bara að hafa það. Þannig er nefninlega mál með vexti að ég hef látið breyta mér í geit. Þetta ferli byrjaði allt fyrir um 11 árum þegar græddar voru á mig klaufar og smá horn (sem ég kýs oft að kalla nibbana). Núna, mörgum hárígræðsluaðgerðum, hormónabreytingum og sjúkraþjálfun þrisvar í viku í rúmann áratug er ég loks að verða að fullgildri geit. En afhverju sjúkraþjálfun? jú, það er erfiðara en manni grunar að hætta að standa uppréttur og byrja að nota fjóra fætur dags daglega. Nú fer ég alltaf út í garð til að matast og losa mig við úrgang.

Posted at 01:00 am by asgeir
Segðu eitthvað!  

Sunday, April 01, 2007
Hvað er að frétta?

Jæja þá er kominn tími á mitt árlega blogg í tilefni dagsins. Eins og sumir vita þá var ég alinn upp af ormum í austur Noregi og skýrir það þessa sterku þörf sem ég hef stundum fyrir að grafa holur. Um jólin 1963, fundu japanskir ferðamenn mig og sáu að ég væri mennskur en ekki ormur. Ferðamennirnir fóru með mig til heimalands síns, Japan. þar bjó ég í 23 ár. Fyrst um sinn vissi ég ekki upp né niður hvað væri í gangi, því auðvitað hélt ég enn að ég væri ormur. Ég var nokkra mánuði að finna að út að ég væri manneskja eins og hinir. Þessi mannaheimur var vægast sagt mjög undarlegur. Ég fluttist frá Japan til eyju sem hét áður Ísland en heitir nú Mosfellsbær. Ég kynntist fljótt besta vini mínum, Brandi Enni og var hann svo góður að leyfa mér að búa í skottinu á bílnum sínum. Ég hóf síðan störf við að hreinsa líkþorn af tánum á gömlu fólki og hef starfað við það síðan. Ég hef látið breyta nafni mínu og geng nú undir nafninu Magðalena. Góðar stundir.

Posted at 11:27 pm by asgeir
Comments (2)  

Saturday, March 24, 2007
Myndasíða

Ég er með myndasíðu sem er á slóðinni: http://www.flickr.com/photos/asgeirpeturs/ hún er afar hressandi.

Posted at 01:06 pm by asgeir
Segðu eitthvað!  

Tuesday, March 13, 2007

Jæja eru ekki allir í stuði?

Posted at 07:13 pm by asgeir
Comments (5)  

Virkar þetta eitthvað?

ha?

Posted at 07:12 pm by asgeir
Segðu eitthvað!  

Sunday, October 08, 2006
Ónýtt

Síðan mín er ónýt, kemst aldrei inn á hana. Ef að einhver meistarinn nennir að gera alvöru heimasíðu fyrir mig þá má hann láta mig vita og mun ég verða honum ævinlega þakklátur.

Posted at 02:10 pm by asgeir
Segðu eitthvað!  

Friday, June 30, 2006
Draumur

Dreymdi í nótt að ég væri í vinnunni, þessi draumur stóð yfir í marga klukkutíma. Síðan vaknaði ég og fór í vinnuna.
Það er mjög leiðinlegt að fara í vinnuna þegar maður er búinn að vera að vinna alla nóttina.

Posted at 01:42 pm by asgeir
Comments (2)  

Thursday, June 15, 2006
Úrelt

Mér finnst eins og allir séu að breyta um blogg-stað sem gerir það að verkum að allir linkarnir hér til vinstri eru úreltir...nenni samt einhvernvegin ekki að breyta þeim. Þannig að ég get eiginlega bara boðið upp á gamlar síður hér. En vil ég benda áhugasömum á að hægt er að komast að nýjum heimilsföngum með útsjónarsemi.



Posted at 02:03 pm by asgeir
Comments (2)  

Next Page